27.4.2009 | 12:42
Hver eru smiteinkennin?
Í þessa hrikalegu frétt, sem mér finnst minna á æsifrétt (því miður) vantar þessar upplýsingar. Hvernig veit ég, ef ég hef verið að koma frá t.d. Mexíkó (sem ég var sem betur fer ekki) hvort ég er með veiruna í mér??
Ef ýtt er á linkinn við fréttina: "Hér er hægt að fylgjast með nýjustu upplýsingum" og ýtt á linkinn:
EDCD Frequently asked Questions for Human Swine Influenza A (H1N1)
þá má lesa sig til um hvernig veikin lýsi sér. T.d. segir að fólk sem var á hættusvæðunum eins og í Kaliforníu eða Mexíkó og þjáist af öndunarerfiðleikum, hita eða verkjum í vöðvum ættu tafarlaust að hafa samband við heimilislækni sinn.
Á fréttavef Spiegel.de eru einnig betri upplýsingar. Læt linkinn við það fylgja, þá geta þeir sem vilja spreytt sig á þýskunni sinni við lesninguna.
http://www.spiegel.de/panorama/gesellschaft/0,1518,621291,00.html
Vona að þetta hjálpi þeim sem vilja vita meira eins og ég.
Kær kveðja frá Þýskalandi
Búist við að helmingur þjóðarinnar gæti sýkst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Kýktu á lanslæknir.is, þar er komið eitthvað.
Hansína Hafsteinsdóttir, 27.4.2009 kl. 14:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.